Lög um endurgreiðslur hert og skilgreind nánar

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt drög að frumvarpi til breytinga á lögum 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi.

Frumvarpið felur í sér breytingar á lögunum sem viðbrögð við athugasemdum Ríkisendurskoðunar í skýrslu frá október 2019. Jafnframt framlengir frumvarpið gildistíma laganna til 31. desember 2025 og þannig endurgreiðslukerfið.

Breytingatillögurnar eru í nokkrum liðum og helstar þessar:

  • Lagt er til að skilgreint verði betur hvers kyns kvikmynda- og sjónvarpsefni falli undir endurgreiðslukerfið.
  • Krafa verði gerð um staðfestingu löggilts endurskoðanda á öllum kostnaði.
  • Lagt er til að tilgreindur verði sá kostnaður sem ekki telst til framleiðslukostnaðar.
  • Samstarf við embætti ríkisskattstjóra, aðkoma skattayfirvalda og umsýsla og þjónusta við nefnd um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar.
  • Stuðningur frá ríkinu verði tilgreindur í kvikmynda- eða sjónvarpsefni.
  • Íslandsstofa, sem kynnir endurgreiðslukerfið fyrir erlendum framleiðendum, fái aðgengi að kynningarefni.

Hagaðilar og almenningur er hvattur til að kynna sér drögin í samráðsgáttinni og gefa umsögn um málið, en frestur er til 8. janúar 2021. Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Að auki má benda á að í Kvikmyndastefnu til ársins 2030 er stefnt að endurskoðun endurgreiðslukerfisins sem mun miða að því að því að varðveita kosti þess en jafnframt þróa það á þann veg að það standist alþjóðlega samkeppni á hverjum tíma.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR