Aðsókn | SÍÐASTA VEIÐIFERÐIN nálgast 26 þúsund gesti

Eftir sextándu sýningarhelgi (þar af tíu helgar í sýningum) er Síðasta veiðiferðin enn á toppi aðsóknarlistans þar sem hún hefur verið frá frumsýningu í byrjun mars. Aðsókn nálgast 26 þúsund gesti.

1,516 sáu myndina í vikunni miðað við 2,221 gest vikuna áður. Nemur heildarfjöldi gesta nú 25,760 manns.

ATH: Kvikmyndahúsin lokuðu þann 24. mars vegna kórónaveirufaraldursins og opnuðu aftur 4. maí.

Aðsókn á íslenskar myndir 15.-21. júní 2020

VIKURMYNDAÐSÓKNALLS (SÍÐAST)
16Síðasta veiðiferðin1,51625,760 (24,244)
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR