[Klippa] Laddi undirbýr eigin greftrun í þáttaröðinni JARÐARFÖRIN MÍN

Tvær klippur úr þáttaröðinni Jarðarförin mín hafa verið opinberaðar. Í þáttaröðinni leikur Þórhallur Sigurðsson (Laddi) dauðvona mann sem ætlar að skipuleggja og vera viðstaddur sína eigin gala jarðarför. Öll þáttaröðin er væntanleg á morgun miðvikudaginn 8. apríl í Sjónvarp Símans Premium og fyrsti þáttur verður sýndur í opinni dagskrá á Páskadag í Sjónvarpi Símans.

Jarðarför­in mín er ljúfsár en al­vöru­gef­in þáttaröð með Þór­halli Sig­urðssyni í aðal­hlut­verki. Hún fjall­ar um mann sem grein­ist með ólækn­andi heila­æxli sama dag og hann kemst á eft­ir­laun. Hann hef­ur eytt síðustu ára­tug­un­um í til­gangs­lausa rútínu, fjar­lægst fjöl­skyldu sína og ekki lifað líf­inu sem skildi. Nú eru tvær vik­ur áður en hann fer í skurðaðgerð sem mun að öll­um lík­ind­um draga hann til dauða. Hann ákveður að bæta upp fyr­ir tapaðan tíma með því að halda sína eig­in gala jarðarför og vera sjálf­ur viðstadd­ur. Það er samt ekki eins ein­falt og það hljóm­ar. Fyrr­ver­andi eig­in­kon­an, einka­son­ur­inn og tengda­dótt­ir­in hafa lít­inn skiln­ing fyr­ir þess­um áform­um, hvað þá barna­barnið sem dýrk­ar afa sinn og get­ur ekki hugsað sér að missa hann. Svo flæk­ist málið enn frek­ar þegar ást­in blómstr­ar á ný milli hans og fyrr­ver­andi kær­ustu en hún er ein­mitt prest­ur­inn sem á að jarðsyngja hann.

Glassriver framleiðir en byggt er á hugmynd Jóns Gunnars Geirdal. Kristófer Dignus leikstýrir en handritshöfundar eru auk hans, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, Jón Gunnar Geirdal, Ragnar Eyþórsson, Sóli Hólm og Baldvin Z.

Sjá nánar hér: Sjáðu Ladda í nýju hlutverki – Albumm.is!

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR