Sýningar á GULLREGNI hefjast í dag föstudag

Sigrún Edda Björnsdóttir fer með aðalhlutverkið í Gullregni.

Gullregn eftir Ragnar Bragason, sem byggð er á samnefndu leikriti hans, verður frumsýnd í Senubíóunum í dag, 10. janúar.

Myndin segir af Indíönu Jónsdóttur sem býr í lítilli íbúð í Fellahverfinu í Breiðholti, þar sem hún lifir á bótum þótt hún sé alheilbrigð. Indíana er umkringd fólki af erlendum uppruna sem hún fyrirlítur. Í litlum garði við íbúðina hefur hún ræktað gullregn sem er hennar stolt og yndi. Þegar einkasonurinn kemur heim með kærustu af erlendum uppruna snýst heimur Indíönu à hvolf.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR