![](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2020/01/Margrét-Einarsdóttir.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
Margrét Einarsdóttir búningahönnuður hefur verið tilnefnd til Guldbaggen verðlauna sænsku kvikmyndaakademíunnar fyrir búninga ársins í kvikmyndinni Eld & lågor eftir Måns Mårlind og Björn Stein.
Þetta kemur fram á vef Kvikmyndamiðstöðvar og þar segir einnig:
Myndin Eld & lågor er einnig tilnefnd fyrir bestu kvikmyndatöku ársins, bestu förðun/gervi ársins, tónlist ársins, leikmynd ársins og brellur ársins.
Margrét er vel þekkt í kvikmyndaheiminum en hún hefur m.a. unnið til nokkurra Edduverðlauna fyrir búninga ársins eins og í kvikmyndunum Hrútar, Vonarstræti og Á annan veg.
Nánari upplýsingar um Guldbaggen verðlaunin má finna hér.
Sjá nánar hér: Margrét Einarsdóttir búningahönnuður tilnefnd til Guldbaggen verðlaunanna