Tökum lokið á spennutryllinum „Arctic“ með Mads Mikkelsen

Mads Mikkelsen fer með aðalhlutverkið í Arctic.

Tökum á hrakningamyndinni Arctic er nýlokið hér á landi. Mads Mikkelsen fer með aðalhlutverkið. Pegasus og Einar Þorsteinsson kvikmyndagerðarmaður í Los Angeles eru meðal framleiðenda. Tökur stóðu í 22 daga og fóru fram við Nesjavelli og Fellsendavatn skammt frá Þórisvatni.

Joe Penna leikstýrir og skrifar handrit ásamt Ryan Morrison. María Thelma Smáradóttir fer einnig með hlutverk í myndinni og þá var starfsliðið nær eingöngu skipað Íslendingum. Tómas Örn Tómasson sá um kvikmyndatöku, Atli Geir Grétarsson og Gunnar Pálsson gerðu leikmynd, Margrét Einarsdóttir sá um búninga og Ragna Fossberg um förðun.

Myndin fjallar um mann sem verður strandaglópur á Norðurheimskautinu. Tilraun til björgunar fer í vaskinn og hann verður að gera upp við sig hvort hann dvelji áfram í tjaldi sínu eða haldi í háskaför á vit óvissunnar þar sem óvíst er um björgun.

Sjá umfjöllun Deadline hér: Mads Mikkelsen To Star In Thriller ‘Arctic’ From Armory Films

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR