[Stikla] „Arctic“

Mads Mikkelsen í Arctic.

Stikla kvikmyndarinnar Arctic með Mads Mikkelsen í aðalhlutverki, er komin út og má skoða hér. Myndin verður sýnd á næsta ári.

Pegasus er meðal framleiðenda. Tökur fóru fram á Íslandi, meðal annars við Nesjavelli og Fellsendavatn skammt frá Þórisvatni.

Joe Penna leikstýrir og skrifar handrit ásamt Ryan Morrison. Íslenska leikkonan María Thelma Smáradóttir fer með hitt hlutverkið í myndinni og þá var starfsliðið nær eingöngu skipað Íslendingum. Tómas Örn Tómasson sá um kvikmyndatöku, Atli Geir Grétarsson og Gunnar Pálsson gerðu leikmynd, Margrét Einarsdóttir sá um búninga og Ragna Fossberg um förðun.

Myndin fjallar um mann sem verður strandaglópur á Norðurheimskautinu. Tilraun til björgunar fer í vaskinn og hann verður að gera upp við sig hvort hann dvelji áfram í tjaldi sínu eða haldi í háskaför á vit óvissunnar þar sem óvíst er um björgun.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR