Ingvar E. Sigurðsson tilnefndur til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fyrir „Hvítan, hvítan dag“

Ingvar E. Sigurðsson er tilnefndur til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn í Hvítum, hvítum degi eftir Hlyn Pálmason. Þetta var kunngjört í gær.

Verðlaunaafhendingin mun fara fram í Berlín þann 7. desember næstkomandi.

Aðrir tilnefndir leikarar eru Antonio Banderas (Pain and Glory), Jean Dujardin (An Officer and a Spy), Pierfrancesco Favino (The Traitor), Levan Gelbakhiani (And Then We Danced) og Alexander Scheer (Gundermann).

Ingvar hefur nú þegar unnið til þrennra verðlauna fyrir frammistöðu sína í myndinni. Hann var síðast tilnefndur til þessara virtu verðlauna árið 2000 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Englar alheimsins eftir Friðrik Þór Friðriksson, en þar hlaut hann áhorfendaverðlaunin fyrir leik sinn.

Björk Guðmundsdóttir er eini Íslendingurinn sem hefur unnið til leikaraverðlaunanna á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum , en það var fyrir hlutverk hennar í Dancer in the Dark eftir Lars Von Trier árið 2000.

Þá hefur framleiðslufyrirtækið Join Motion Pictures, sem framleiddi Hvítan, hvítan dag, fengið tvær tilnefningar frá Evrópsku akademíunni fyrir fyrri verk sín í leikstjórn Guðmundar Arnar Guðmundssonar. Hvalfjörður var tilnefnd sem besta stuttmyndin árið 2014 og Hjartasteinn vann EUFA háskólaverðlaunin (European University Film Award) árið 2016.

Verðlaunahátíð Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna er haldin annað hvert ár í Berlín en þess á milli til skiptis í öðrum borgum. Á næsta ári mun hátíðin fara fram í Hörpu í Reykjavík.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR