Þóra Ingólfsdóttir nýr forstöðumaður Kvikmyndasafns

Þóra Sigríður Ingólfsdóttir hefur tekið við stöðu forstöðumanns Kvikmyndasafnsins.

Þóra Sigríður Ingólfsdóttir hefur verið skipuð forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands frá 1. febrúar 2019. Þóra starfaði áður sem forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands, frá árinu 2007.

Meginhlutverk Kvikmyndasafns Íslands er að safna, skrásetja og varðveita íslenskar kvikmyndir, samvinnuverkefni íslenskra og erlendra aðila og erlendar kvikmyndir sem teknar hafa verið á Íslandi. Safnið hefur ennfremur eftirlit með skylduskilum kvikmyndaefnis samkvæmt lögum um skylduskil til safna.

Sjá nánar hér: Nýr forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR