„XY“ vinnur Sprettfiskinn á Stockfish kvikmyndahátíðinni

Anna Karín Lárusdóttir leikstjóri XY.

Sigurvegari Sprettfisksins var tilkynntur á lokaathöfn Stockfish hátíðarinnar í gærkvöldi. Stuttmyndin XY eftir Önnu Karín Lárusdóttur bar sigur úr býtum og hlaut í verðlaun 1 milljón kr. tækjaúttekt hjá Kukl.

Í dómnefnd sátu Alissa Simon dagskrárstjóri Palm Springs IFF, Steve Gravestock dagskrárstjóri á Toronto IFF og Wendy Mitchell, norrænn fréttaritari hjá Screen International og norrænn tengiliður San Sebastian kvikmyndahátíðarinnar.

Umsögn dómnefndar um verðlaunamyndina er eftirfarandi:

“First, we would like to thank the Stockfish Film Festival for asking us to be on the jury and for so graciously hosting us in one of the world’s most vibrant cities. It was an honour to serve on the Shortfish jury and see the work of a new generation of Icelandic filmmakers. For its assured direction, nuanced and touching performances (especially from its talented young cast), and sensitive engagement with timely and complicated issues, the jury awards the prize to XY by Anna Karin Larusdottir”

Sprettfiskur er stuttmyndakeppni Stockfish hátíðarinnar. Markmið keppninnar er að vekja athygli á ungu og upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja til frekari dáða með verðlaunum sem leggja grunninn að næsta verkefni.

Sjá nánar hér: XY valin sigurvegari Sprettfisksins á Stockfish kvikmyndahátíðinni

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR