[Stikla] Heimildamyndin „Svona fólk“ frumsýnd

Heimildarmyndin Svona fólk eftir Hrafnhildi Gunnarsdóttur var frumsýnd í Bíó Paradís í gær en almennar sýningar hefjast í dag. Myndin fjallar um baráttu íslenskra homma og lesbía fyrir fullum lagalegum mannréttindum. Sú saga er um margt sérstök og óvenjuleg segir í kynningu, en fáir minnihlutahópar hafa náð jafn langt á eins skömmum tíma og fá samfélög í heiminum tekið eins snöggum stakkaskiptum.

Að sögn Hrafnhildar mun verkið einnig birtast sem þáttaröð í fimm hlutum í RÚV á næsta ári.

Verkefnið hefur verið um aldarfjórðung í vinnslu. Á þessum 25 árum frá því að Hrafnhildur tók fyrsta viðtalið hefur safnast saman u.þ.b. 400 klst af kvikmynduðu efni sem því miður kemst ekki allt fyrir í heimildamyndinni né þáttaröðinni. Það var því ákveðið að gera aðgengileg stóran hluta af viðtölunum bæði í handriti og á kvikmynd fyrir almenning og aðra áhugasama um þessa sögu. Það verður gert á vefsíðunni svonafolk.is þegar frumsýningum er lokið í kvikmyndahúsum og í sjónvarpi fyrir kynslóðir framtíðar.

Halla Kristín Einarsdóttir hefur unnið að klippingu verksins um nokkurra ára skeið og að undanförnu hefur Ísold Uggadóttir einnig komið að klippingunni.

Við frumsýninguna í gær opnaði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og menntamálaráðherra umrædda vefsíðu en þar munu í framtíðinni öll viðtölin sem Hrafnhildur Gunnarsdóttir hefur tekið upp í tengslum við þetta verkefni vera aðgengileg, bæði sem textaskjöl og sem vídeófælar fyrir komandi kynslóðir sem vilja kynna sér málefnið til hlítar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR