Aðsókn | Mikil aðsókn á „Lof mér að falla“

Lof mér að falla eftir Baldvin Z er áfram í efsta sæti aðsóknarlistans eftir aðra sýningarhelgi, en alls hafa um 23,500 séð hana hingað til, sem þýðir að yfir fimmtán þúsund manns sáu hana í síðustu viku.

Þetta eru sjaldgæfar tölur, en þær benda til þess að myndin fari á endanum yfir fimmtíu þúsund gesta markið.

Alls sáu 15,274 gestir myndina í vikunni.

Alls hafa nú 17,687 séð Kona fer í stríð eftir 17. sýningarhelgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 10.-16. september 2018

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
2Lof mér að falla15,274 23,5038,229
17Kona fer í stríð14417,687 17,543
Söngur Kanemu7713457
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR