![](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2018/09/oxzsmá-hljómsveitin.jpeg?resize=640%2C368&ssl=1)
Í tilefni þess að kvikmynd Óskars Jónassonar og félaga, Sjúgðu mig Nína (1985) er sýnd á Gamanmyndahátíðinni á Flateyri um helgina, birtir Klapptré umsagnir gagnrýnenda Þjóðviljans og Morgunblaðsins um myndina þegar hún kom út haustið 1985.
Myndin naut töluverðra vinsælda í Regnboganum á sinni tíð og varð þá þegar nokkurskonar “költmynd”. Vegur hennar sem slíkrar hefur vaxið allar götur síðan, enda hafa sýningar á henni verið vægast sagt sjaldgæfar.
Smellið á myndirnar til að stækka.