Aðsókn | „Undir trénu“ komin yfir fjörtíu þúsund gesta markið eftir níu vikur

Rúmlega 40.000 gestir hafa nú séð Undir trénu eftir níundu sýningarhelgi og er hún því komin í hóp mest sóttu myndanna (nú í 13. sæti) frá því formlegar mælingar hófust.

Undir trénu er nú í 10. sæti aðsóknarlistans. 689 manns sáu hana í vikunni en en heildarfjöldi gesta nemur nú 40,569 manns.

Rökkur er í 12. sæti eftir aðra sýningarhelgi. 442 sáu hana í vikunni en alls hafa 1,308 manns séð hana frá upphafi sýninga.

Heimildamyndin Island Songs var frumsýnd um helgina og sáu hana 129 manns.

Sumarbörn er í 17. sæti. 121 sáu myndina í vikunni en alls hafa 1,468 séð hana eftir eftir fjórðu sýningarhelgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 30. okt. til 5. nóv. 2017

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
9Undir trénu689 40,56939,880
2Rökkur442 1,308866
Island Songs129129-
4Sumarbörn1211,4681,347
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR