Fjórar íslenskar myndir á Nordisk Panorama

Rammi úr Bestu vinkonur ad eilifu amen eftir Katrínu Björgvinsdóttur.
Rammi úr Bestu vinkonur ad eilifu amen eftir Katrínu Björgvinsdóttur.

Keep Frozen eftir Huldu Rós Guðnadóttur keppir um bestu heimildamyndina á Nordisk Panorama (Malmö 16.-21. sept.), auk þess sem þrír nýliðar; Þórður Pálsson, Anna Gunndís Gunnarsdóttir og Katrín Björgvinsdóttir keppa með stuttmyndir sínar Brothers, I Can’t Be Seen Like This og Bestu vinkonur að eilífu amen um titilinn Besta nýja norræna röddin.

Þá verða þrjú íslensk verk í vinnslu kynnt í Forum hluta hátíðarinnar, en þau eru Love Always eftir Kristínu Andreu Þórðardóttur, The Far Traveller eftir Jóhann Sigfússon og Permaculture Preacher eftir Heather Millard og Þórð Jónsson.

Íslenskar myndir hafa verið sigursælar á Nordisk Panorama undanfarin ár, en í fyrra hlaut Einar Baldvin Árnason stuttmyndaverðlaunin fyrir The Pride of Strathmoor og árið áður var mynd Yrsu Roca Fannberg, Salóme, valin besta heimildamyndin.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR