Sérstök sýning á „Where To Invade Next“, Michael Moore svarar spurningum eftir sýningu

Where to incvade Next Michael MooreBíó Paradís stendur fyrir sérstakri kvikmyndasýningu á nýjustu mynd Michael Moore, Where to Invade Next, kl. 16:00 föstudaginn 29. júlí. Ókeypis er inn og allir velkomnir. Hluti myndarinnar var tekin var upp hér á landi síðastliðið vor. Að sýningu lokinni verða lifandi umræður í gegnum Skype með sjálfum Michael Moore, stjórnanda myndarinnar.

Ísland er eitt af 9 ríkjum sem fjallað er um í myndinni. Á meðal íslenskra viðmælenda myndarinnar eru Vigdís Finnbogadóttir, Halla Tómasdóttir, Jón Gnarr, Ólafur Þór Hauksson ofl.

Talsmenn frá öllum löndunum níu verða þátttakendur í Skype umræðum við leikstjórann eftir sýningu sem fer fram samtímis í þeim löndum sem bregður fyrir í myndinni,  en Moore sjálfur er staddur á kvikmyndahátíðinni The Traverse City Film Festival í Bandaríkjunum, þar sem hann er dagskrárstjóri.

Kynnir verður Ísold Uggadóttir, sem annaðist framleiðslu á Íslandstökum myndarinnar.

Í myndinni ferðast Michael Moore til níu landa í Evrópu og Afríku til að skoða hvað Bandaríkin geta lært af þeim. Hann gerir glettnar tilraunir til að “hertaka” góðar hugmyndir annarra þjóða og kíkir meðal annars til Íslands þar sem konur er oftar að finna í stjórnunarstöðum, bæði innan ríkis og sjálfstæðra fyrirtækja, en í mörgum öðrum löndum.

Hann skoðar Ísland, orlof á Ítalíu, skólamötuneyti í Frakklandi, iðnaðarstefnu Þýskalands, fangelsismálakerfi Noregs og kvenréttindastefnu Túnis. Á ferðalagi sínu kemst Michael Moore að því að Bandaríkin hefðu gott af því að tileinka sér sitt hvað af siðum og stefnum annarra þjóða.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR