Þar segir einnig:
Í gær sagði Böðvar Bjarki Pétursson, stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands, að hann hikaði ekki við að lögsækja Rafmennt, sem nú hefur tekið við rekstri skólans, ef félagið myndi nota nafn Kvikmyndaskóla Íslands eða námsskrána sem notuð hefur verið í kennslu. Námskráin sé hans eigin hugarsmíð.
Framkvæmdastjóri og skólameistari Rafmenntar segir samning hafa verið gerðan við skiptastjóra um kaupa á þrotabúi skólans.
„Því átti að fylgja nafn, lén og annað sem varðaði rekstur skólans,“ segir Þór Pálsson, framkvæmdastjóri og skólameistari Rafmenntar.
Nemendur fái það sem þeir skráðu sig í
Námskráin sé birt opinberlega, rétt eins og aðrar viðurkenndar námskrár á framhaldsskólastigi.
„Og þær eru ekkert eyrnamerktar neinni stofnun frekar en annarri.“
Þannig að þið ætlið að styðjast við þessa námskrá?
„Að sjálfsögðu. Nemendur hófu nám í kvikmyndaskóla Íslands miðað við þær forsendur.“
Það sama gildi um kennara sem starfi við skólann.
„Þannig að ég skil ekki alveg hvað átt er við með því að segja að við séum eitthvað að draga saman eða setja námið niður.“
Skilur stöðuna en vísar á skiptastjóra
Þór segir sjónarmið Böðvars engu að síður skiljanlegt.
„Ég meina, hann er að missa fyrirtækið sitt. Menn sem lenda í þeirri stöðu verða beiskir, að sjálfsögðu. Þannig að ég skil hans afstöðu, en ég hef svo sem ekki haft samband við lögfræðing eða neinn til þess að gefa meiri svör við þessu. Í sjálfu sér vísa ég bara áfram á skiptastjóra varðandi það mál,“ sagði Þór Pálsson, framkvæmdastjóri og skólameistari Rafmenntar.