Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin

Leikkonan ástsæla, Margrét Helga Jóhannsdóttir, lést þann 17. júní síðastliðinn, 86 ára að aldri.

Segir á Facebook síðu Borgarleikhússins:

Margrét Helga fæddist 4. maí 1940 og lauk námi frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1967. Fyrstu árin lék hún nokkur hlutverk hjá Þjóðleikhúsinu og tók virkan þátt í starfi Leiksmiðjunnar, en árið 1972 gekk hún til liðs við Leikfélag Reykjavíkur í Iðnó. Hún varð fljótlega einn af burðarásum Leikfélagsins og starfaði þar hátt í hálfa öld. Margrét Helga var því órjúfanlegur hluti af sögu Leikfélags Reykjavíkur bæði í Iðnó og síðar í Borgarleikhúsinu. Hún var listakona sem sameinaði kraft, húmor, næmni og sterka sviðsnærveru; leikkona sem gat á augabragði kallað fram stórar tilfinningar en jafnframt haft fullkomið vald á hinu smáa, kómíska og mannlega. Margrét Helga lék í fjölda íslenskra bíómynda, allt frá Morðsögu, Landi og sonum og Atómstöðinni til Engla alheimsins, Bjarnfreðarsonar og Eldfjalls. Á hvíta tjaldinu og í sjónvarpi birtist sama nákvæmni og mannskilningur og á sviðinu; hún skapaði persónur sem urðu áhorfendum eftirminnilegar, hvort sem hlutverkin voru stór eða smá.

Margrét Helga hlaut Edduverðlaunin í tvígang – fyrir leik sinn í Englum alheimsins og Eldfjalli. 2024 hlaut hún heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands á Grímunni fyrir ævistarf í þágu sviðslista.

Ragnar Bragason minnist Margrétar Helgu

Ragnar skrifar á Facebook síðu sína:

Elsku besta Margrét Helga hefur yfirgefið leiksviðið og það er bæði með trega og þakklæti sem ég rita þessi fátæklegu orð. Vinkona mín var alger draumur að vinna með og ekki síðra var einfaldlega að sitja og spjalla yfir kaffibolla. Ég sagði oft að hún væri viljugri en nýútskrifaður leikari sem hleypt er út að vori. Forvitninni og vinnuseminni engin takmörk sett og engin deildi um hæfileikana. Það er of langt mál að telja upp öll hennar afrek og ómetanlegt framlag til íslensks leikhús og kvikmyndalífs, en í fyrstu athugasemd hér fyrir neðan er lítið myndband sem ég gerði í tilefni áttatíu ára afmælis hennar árið 2020. Þar má finna brot af hinu og þessu sem við brölluðum í gegnum tíðina og hún brilleraði í. BÖRN, VAKTASERÍURNAR, BJARNFREÐARSON, HEIMSENDIR, FANGAR, GULLREGN ofl. Elsku Margrét Helga takk fyrir allt og góða ferð, þín minning mun lengi lifa.

Hann birtir einnig myndband sem hann vann í tilefni áttræðisafmælis hennar árið 2020.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR