Fréttastofa RÚV fjallaði á dögunum um hina erfiðu stöðu sem uppi er í íslenskri kvikmyndagerð. Rætt var við Steingrím Dúa Másson formann Félags kvikmyndagerðarmanna og Ragnar Gunnarsson hjá Skerpu, félagi tæknifólks, auk ýmissa annarra.
Í umfjölluninni er meðal annars fjallað um atgervisflótta úr greininni, greiðsluerfiðleika sumra fyrirtækja, bág starfskjör og verkefnaskort.
Í mars síðastliðnum birti Hilmar Sigurðsson graf á Facebook síðu SÍK sem sýnir veltu í íslenskri kvikmyndagerð undanfarin ár. Hilmar skrifar:
Það er 35% samdráttur í innanlandsframleiðslu, 30% samdráttur í heildinni og 25% í útflutningstekjum. Þetta rímar við allt sem hefur verið sagt sl. árið og þýðir auðvitað færri íslensk verk á íslensku og umtalsvert færri störf! Á sama tíma kemur efnið sem er framleitt í 50% tilvika að ákvörðun ferðamanna um að halda til Íslands skv. Ferðamálastofu. Endilega að þjarma meira að kvikmyndagreininni sem endurgreiðir öll opinber framlög á framleiðslutíma í formi beinna skatta.
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.