Sundruð er stutt teiknimynd um Neema, ungan innflytjanda á Íslandi. Hún upplifir röð óvæntra umbreytinga í sínum vikulegu sundferðum sem koma í veg fyrir að hún geti tengst fólkinu í kringum sig. Á meðan hún á í erfiðleikum með að jarðtenga sig, hjálpa óvænt tengsl henni að sigrast á einmanaleika og sorg.
Framleiðandi er Heather Millard hjá Compass Films. Myndin var unnin á Íslandi og Frakklandi, í samframleiðslu með Belgíu. Annecy er ein allra stærsta teiknimyndahátíð heims.













