EXXTINCTION EMERGENCY verðlaunuð í Montreal

Heimildamyndin Exxtinction Emergency eftir Sigurjón Sighvatsson var verðlaunuð á Montreal Independent Film Festival sem fór fram á dögunum.

Myndin var valin „Best Environmental Feature„. Hún mun taka þátt í fleiri hátíðum á næstunni, þar á meðal í Madrid á Spáni og í S-Afríku. Hún var frumsýnd á RIFF síðastliðið haust.

Í myndinni er fjallað um tilurð umhverfissamtakanna Extinction Rebellion sem spratt upp í Bretlandi árið 2018 í kjölfar sláandi skýrslu frá Milliríkjanefndinni um loftslagsbreytingar.

Fylgst er með samtökunum, baráttu þeirra fyrir málstaðnum og hvernig þau læra af af mistökum annarra baráttumanna. Stór hluti hópsins er kominn á aldur og fylgst er með því hvernig stjórnvöld lenda í vanda með hvernig eigi að meðhöndla borgaralega óhlýðni þeirra.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR