NAPÓLEONSSKJÖLIN nálgast 29 þúsund gesti

Napóleonsskjölin er með mesta aðsókn þeirra fimm íslensku kvikmynda sem voru í sýningum í vikunni sem leið. 212 gestir sáu myndina í vikunni, en alls hafa 28,848 séð hana eftir 14. sýningarhelgi.

Á ferð með mömmu sáu 155 í vikunni en alls nemur heildarfjöldi gesta 12,037 eftir 11. sýningarhelgi.

Villibráð sáu 57 í vikunni, en alls nemur heildarfjöldi gesta 56,218 eftir 18. sýningarhelgi.

Volaða land sáu 92 í vikunni, en alls nemur fjöldi gesta 4,206 eftir níundu sýningarhelgi.

Óráð sáu 24 í vikunni en alls nemur heildaraðsókn 1,748 gestum eftir sjöttu sýningarhelgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 1.-7. maí 2023

VIKUR MYND AÐSÓKN (SÍÐAST) ALLS (SÍÐAST)
14 Napóleonsskjölin 212 (121) 28,848 (28,636)
11 Á ferð með mömmu 155 (281) 12,037 (11,882)
9 Volaða land 92 (81) 4,206 (4,114)
18 Villibráð 57 (183) 56,218 (56,161)
6 Óráð 24 (74) 1,748 (1,724)

(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR