17 nýjar heimildamyndir á Skjaldborg 2023

Skjaldborgarhátíðin fer fram um hvítasunnuhelgina á Patreksfirði, dagana 26.-29. maí. 17 nýjar heimildamyndir verða frumsýndar.

Auk heimildamyndanna verða kynnt verk í vinnslu, Kvikmyndasafn Íslands sýnir perlur úr sínu safni og Friðgeir Einarsson sýnir fyrirlestrarverkið blessbless.is. Þá verða pallborðsumræður um framtíð íslenskrar heimildamyndagerðar þar sem Gísli Snær Erlingsson, nýr forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, Margrét Jónasdóttir, aðstoðardagskrárstjóri RÚV og heimildamyndahöfundar og framleiðendur skeggræða heitustu málefnin í heimildamyndafaginu.

Heiðursgestir hátíðarinnar í ár eru Corinne van Egeraat og Petr Lom, heimildamyndahöfundar og framleiðendur ZINDOC. Mannréttindi eru þeirra helsta viðfangsefni og dæmi um það er Myanmar Diaries sem kom út 2022 og hefur unnið til fjölda verðlauna.

Heiðursgestir Skjaldborgar 2023, Corinne van Egeraat og Petr Lom, heimildamyndahöfundar.

Allar frumsýndar myndir keppa um áhorfendaverðlaunin Einarinn, dómnefndaverðlaunin Ljóskastarann og hvatningarviðurkenningu dómnefndar. Með Einarnum og Ljóskastaranum fylgir veglegt verðlaunafé í formi þjónustu frá tækjaleigunni Kukl og eftirvinnslufyrirtækinu Trickshot.

Eftirfarandi 17 myndir verða frumsýndar á hátíðinni:

Heimaleikurinn
Leikstjóri: Smári Gunnarsson, Logi Sigursveinsson
Framleiðandi: Stephanie Thorpe, Elfar Aðalsteins, Heather Millard, Freyja Kristinsdóttir
Framleiðslufyrirtæki: Silfurskjár

Skuld
Leikstjóri: Rut Sigurðardóttir
Framleiðandi: Rut Sigurðardóttir, Dögg Mósesdóttir
Framleiðslufyrirtæki: Bíóbúgí og Northern Wave Productions

Soviet Barbara – The story of Ragnar Kjartansson in Moscow
Leikstjóri: Gaukur Úlfarsson
Framleiðandi: Gaukur Úlfarsson, Guðrún Olsen, Guðni Tómasson, Freyr Árnason, Kristín Ólafsdóttir
Framleiðslufyrirtæki: Ofvitinn

Hlemmur Mathöll
Leikstjóri: Óli Hjörtur ÓIafsson
Framleiðandi: María Sif Daníelsdóttir

Tarfurinn
Leikstjóri: Helga Dís Hálfdanardóttir
Framleiðendur: Helga Dís Hálfdanardóttir, Ágústa Margrét Jóhannsdótir

Skessusystur
Leikstjóri: Halla Mía
Framleiðandi: Halla Mía

Konni
Leikstjórar: Þorbjörg Jónsdóttir og Lee Lynch
Framleiðendur: Þorbjörg Jónsdóttir og Lee Lynch

Skynjanir
Leikstjóri: Fanney Björk Ingólfsdóttir
Framleiðandi: Fanney Björk Ingólfsdóttir

Hvar ert þú nú?
Leikstjóri: Steiní Kristinsson
Framleiðandi: Steiní Kristinsson

A portrait of my sister on fire
Leikstjóri: Gabríel Elí Jóhannsson
Framleiðandi: Gabríel Elí Jóhannsson

Super Soldier
Leikstjóri: Arna Tryggvadóttir
Framleiðandi: Arna Tryggvadóttir

Fjárlög veiranna
Leikstjóri: Herbert Sveinbjörnsson
Framleiðandi: Margrét Hrafnsdóttir

Clair de lune
Leikstjóri: Júlía Óskarsdóttir
Framleiðandi: Júlía Óskarsdóttir

Á ekki bara að henda þessu?
Leikstjóri: Ragnheiður Maísól Sturludóttir
Framleiðandi: Ragnheiður Maísól Sturludóttir

Hvar endar þetta?
Leikstjóri: Valka – Valborg Salóme Ingólfsdóttir
Framleiðandi: Valborg Salóme Ingólfsdóttir

Mamma
Leikstjóri: Inga Óskarsdóttir
Framleiðandi: Inga Óskarsdóttir

Uppskrift: Líf eftir dauðann
Leikstjóri: Bergþóra Ólöf Björnsdóttir
Framleiðandi: Bergþóra Ólöf Björnsdóttir

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR