VOLAÐA LAND opnar í sjöunda sæti

Á ferð með mömmu er með mesta aðsókn íslenskra kvikmynda í vikunni sem leið.

Volaða land var frumsýnd á föstudag og sáu hana 563 yfir opnunarhelgina, en alls 961 með forsýningum. Líklegt er að hún endi öðru hvoru megin við fimm þúsund gesti þegar upp er staðið.

Á ferð með mömmu sáu 1,592 í vikunni en alls nemur heildarfjöldi gesta 5,176 eftir þriðju sýningarhelgi.

1,388 gestir sáu Napóleonsskjölin í vikunni, en alls hafa 25,415 séð hana eftir sjöttu sýningarhelgi.

Villibráð sáu 947 gestir í vikunni, en alls nemur heildarfjöldi gesta 53,099 eftir tíundu sýningarhelgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 6.-12. mars 2023

VIKUR MYND AÐSÓKN (SÍÐAST) ALLS (SÍÐAST)
3 Á ferð með mömmu 1,592 (1,642) 5,176 (3,584)
6 Napóleonsskjölin 1,388 (1,966) 25,415 (24,027)
10 Villibráð 947 (1,410) 53,099 (52,152)
Volaða land 563 (helgin) 961 (með forsýningum)

(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR