SVÖRTU SANDAR meðal sjö titla á Berlinale Series

Þáttaröðin Svörtu sandar hefur verið valin í flokkinn Berlinale Series á kvikmyndahátíðinni í Berlín sem fram fer í febrúar.

Alls verður sýnt úr sjö seríum í flokknum að þessu sinni, en þetta er sjöunda árið sem hann er hluti af dagskrá hátíðarinnar. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem íslensk þáttaröð er valin í þennan flokk.

Svörtu sandar er framleidd af þeim Arnbjörgu Hafliðadóttur, Andra Ómarssyni og Herði Rúnarssyni hjá framleiðslufyrirtækinu Glassriver. Baldvin Z leikstýrir þáttunum.

Aldís Amah Hamilton, Ævar Þór Benediktsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Þór Tulinius og Kolbeinn Arnbjörnsson fara með aðalhlutverk seríunnar, sem sköpuð er eftir hugmynd höfundarins Ragnars Jónssonar, ásamt Aldísi, Baldvin Z og Andra Óttarssyni.

Í umsögn Berlinale hátíðarinnar um Svörtu sanda er seríunni hrósað sérstaklega fyrir dýpt í karaktermótun, óvenjulegan snúning á hina hefðbundnu leit að sökudólg í glæpaseríum með því að leyfa persónulegu lífi og áskorunum karakteranna að vega þyngra en málið sjálft sem þau rannsaka:

“A remote, one-horse town in Iceland. A female corpse lies in the black sand. The local authorities assume it was an accident; it would not be the first time that reckless tourists have fallen off an unsecured cliff. Police officer Anita, who has just returned to her hometown from Reykjavik, is the only one who smells a rat and stubbornly continues to investigate. When another woman turns up seriously injured, it becomes apparent that Anita is right. Monumental Icelandic vistas alternate with detailed observations of police work. Corpses stink and are heavy as lead, but at work the talk is also, or even above all, about relationships. Here, everyone knows everyone else, and everyone has a common past, one that seems to weigh heavily on Anita in particular. Creators Aldís Amah Hamilton, Ragnar Jónsson and Andri Óttarson worked together with creator, showrunner and director Baldvin Z to develop this unconventional crime series in which the protagonists, their concerns and interpersonal relationships are more important than the search for suspects.

Nú þegar hafa Svörtu sandar verið seld til Kína, Ástralíu, Belgíu, Finnlands, Hollands og Indlands auk þess sem frekari fregna af sölu er að vænta á komandi vikum.

Svörtu sanda má nálgast á Stöð 2+ og að auki er aðgengilegt hlaðvarpið Sandkorn sem fjallar um þættina, þar sem Baldvin Z fer ofan í öll litlu smáatriðin sem eru partur af seríunni.

HEIMILDBerlinale
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR