RÁÐHERRANN selst víða

Úr Ráðherranum (mynd: Lilja Jóns).

Sjónvarpsþáttaröðin Ráðherrann, sem Sagafilm framleiðir, hefur verið seld til sýninga í Bandaríkjunum, Ástralíu, Kanada og Suður Evrópu.

Cineflix Rights, dreifingaraðili Ráðherrans á heimsvísu, hefur skrifað undir samninga við nýju streymisveituna Topic í Bandaríkjunum um sýningu á þáttunum fyrir bandarískan markað. Einnig hefur verið skrifað undir samninga við SBS í Ástralíu, AMC Networks International í Suður Evrópu og TVO í Kanada um sýningu á þáttunum.

Þáttaröðin hóf göngu sína á RÚV 20. september síðastliðinn og hafa sýningar á þáttunum þegar hafist á SVT í Svíþjóð og YLE í Finnlandi.

„Við erum gríðarlega ánægð að sjá Ráðherrann fara á eins stóra markaði og Bandaríkin, Ástralía, Suður Evrópa og Kanada eru, til viðbótar við Norðurlöndin og Niðurlönd. Mikil vinna hefur farið í að ganga frá þessum samningum og vonum við auðvitað að þessar þjóðir taki vel við Benedikt og hans pólítík, rétt eins og hans heimafólk hefur gert,“

segir Hilmar Sigurðsson, forstjóri Sagafilm

“Það er afar ánægjulegt að sjá að Ráðherrann höfði til þjóða um víða veröld. Þessar sölur sýna enn og aftur fram á hvað íslenskt sjónvarpsefni er langt komið á þeim örfáu árum sem framleiðsla slíks efnis hefur staðið yfir á Íslandi. Samkeppnin er afar hörð um athygli kaupenda en Ráðherrann hefur án efa vakið eftirtekt fyrir að vera öðruvísi sjónvarpsefni. Það gleður okkur sannarlega í Sagafilm,”

segir Kjartan Þór Þórðarson framkvæmdastjóri Sagafilm Nordic í Stokkhólmi sem sér um alþjóðlega fjármögnun leikins sjónvarpsefnis Sagafilm.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR