spot_img

Kvikmyndalandið Ísland og áskoranir sem blasa við kvikmyndaheiminum á Bransadögum RIFF

Hinir árlegu Bransadagar RIFF verða settir fimmtudaginn 1. október. Í ár er lögð áhersla á að kynna ný íslensk verk í vinnslu og kvikmyndalandið Ísland auk þess sem rýnt verður í þær áskoranir sem blasa við kvikmyndaheiminum í kjölfar heimsfaraldurs.

Framsögumenn eru m.a. Baltasar Kormákur leikstjóri og eigandi RVK Studios og Anna Vigdís Gísladóttir framleiðandi hjá Sagafilm.

Á fimmtudag stýrir Frédéric Boyer, sem fer fyrir dagskrárnefnd RIFF, Verkum í vinnslu í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands. Þar býðst kvikmyndagerðarfólki með verk í vinnslu að komast í tengsl við söluaðila, hátíðir, sjóði og dreifingaraðila. Verkin sem taka þátt í viðburðinum eru Skjálfti, Wolka, Band, This Is Not a Band, Raising the Bar, Vegferðin, Systrabönd og Ófærð 3.

Á fimmtudag fara einnig fram pallborðsumræður tileinkaðar VOD á Íslandi sem stjórnað verður af Ásgrími Sverrissyni leikstjóra og handritshöfundi. Því verður velt upp hvort VOD-ið verði lausnin varðandi seinkun kvikmyndafrumsýninga vegna heimsfaraldur eða hvort horfi fram á stríð á milli kvikmyndahúsa og streymisveita. Framsögumenn eru Þóra Björg Clausen, rekstrarstjóri nýmiðla hjá Sýn, Anna Vigdís Gísladóttir framleiðandi hjá Sagafilm og Hörður Rúnarsson framkvæmdastjóri Glassriver.

Á föstudag eru á dagskrá pallborðsumræður um kvikmyndagerð á Íslandi sem hefur blómstrað mjög síðustu mánuði þrátt fyrir breyttar aðstæður. Þátttakendur verða leiddir í allan sannleik um það hvers vegna Ísland sé kjörinn staður til að taka upp kvikmyndir. Stjórnandi er Bergur Ebbi og framsögumenn Einar Hansen Tómasson, framkvæmdastjóri Film in Iceland, Leifur Dagfinnsson, framkvæmdastjóri TrueNorth og Baltasar Kormákur, leikstjóri og eigandi RVK Studios.

Lokaviðburður Bransadaga RIFF er svokallað RIFF Talks í anda Ted Talks þar sem kvikmyndagerðarfólk og aðrir úr bransanum deila sinni reynslu með áhorfendum. Stjórnandi er Níels Thibaud Girerd og fram koma Sunneva Ása Weisshappel, Ugla Hauksdóttir, Vigfús Þormar Gunnarsson og Rob Tasker.

Alllir viðburðir fara fram á ensku. Þeim verður öllum streymt beint á miðlum RIFF og Verk í vinnslu og pallborðsumræður um kvikmyndagerð á Íslandi einnig á Vísi.

Takmarkaður gestafjöldi getur sótt viðburðina í Norræna Húsinu en aðeins skráðir meðlimir fá aðgang að Verk í Vinnslu. Aðrir viðburðir eru opnir en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram.

Nánari tímasetningar og skráning á viðburði má finna hér.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR