HÉRAÐIÐ keppir um stærstu peningaverðlaun í heimi

Arndís Hrönn Egilsdóttir í Héraðinu.

Héraðið Gríms Hákonarsonar er meðal átta mynda sem keppa um Drekaverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg sem fer fram dagana 24. janúar til 3. febrúar nk. Hátíðin er sú stærsta á Norðurlöndunum og verður nú haldin í 43. skipti. Drekaverðlaunin eru stærstu peningaverðlaun sem þekkjast á kvikmyndahátíðum, en þau nema einni milljón sænskra króna (rúmum 13 milljónum íslenskra króna).

Aðrar myndir í aðalkeppninni í ár eru Disco eftir Jorunn Myklebust Syversen, Beware of Children eftir Dag Johan Haugerud, A Perfectly Normal Family eftir Malou Reymann, Games People Play eftir Jenni Toivoniemi, Uje eftir Henrik Schyffert, Charter eftir Amanda Kernell og Psychosis in Stockholm eftir Maria Back.

Leikarinn Stellan Skarsgård, sem vann til Golden Globe verðlauna nýverið fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttaröðinni Chernobyl, hlýtur heiðursverðlaunin „Nordic Honorary Dragon Award“ í ár.

Tvisvar sinnum hefur íslensk mynd unnið verðlaunin en það voru myndir Dags Kára Péturssonar, Voksne mennesker (2006) og Nói albinói (2003).

“Það er mikill heiður fyrir okkur að keppa um Drekaverðlaunin. Ég hef áður sýnt myndir á hátíðinni en þetta er í fyrsta skipti sem ég er með mynd í aðalkeppninni, þannig að maður er óneitanlega spenntur.” segir Grímur Hákonarson

Héraðið hefur verið á ferð og flugi frá því að hún var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto í september sl. Hún hefur meðal annars verið sýnd á kvikmyndahátíðum í Evrópu, Bandaríkjunum, Indlandi, Kína og víðar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR