Hildur Guðnadóttir verðlaunuð á World Soundtrack Awards

Hildur Guðnadóttir tekur við verðlaunum fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl á World Sountrack Awards 2019.

Hildur Guðnadóttir, sellóleikari og tónskáld, var í gærkvöldi útnefnd sjónvarpstónskáld ársins á Heimshljóðrásar-verðlaunahátíðinni, World Soundtrack Awards, sem haldin er í belgísku borginni Ghent á ári hverju.

RÚV greinir frá og þar segir:

Verðlaunin fær Hildur Guðnadóttir fyrir tónlist sína í sjónvarpsþáttaröðinni Tsjernóbíl. Það er skammt stórra högga á milli hjá Hildi, því hún vann á dögunum einnig til Emmyverðlauna.

Í þakkarávarpi sínu hlóð Hildur samstarfsfólk sitt lofi en tileinkaði móður sinni, söng- og útvarpskonunni Ingveldi G. Ólafsdóttur verðlaunin. Sagði hún viðstöddum að Ingveldur hefði snemma kennt henni að tónlistin væri mun mikilvægara og merkilegra fyrirbæri en allar veraldlegar eigur. Það hefði hún svo sýnt í verki með því að selja bílinn sinn til að fjármagna kaupin á fyrsta sellói Hildar. „Mamma, þetta er fyrir þig,“ sagði Hildur að lokum og lyfti verðlaunagripnum hátt á loft svo mamma hennar, sem var í salnum, sæi hann nú örugglega.

World Soundtrack-verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2001 og er þetta þriðja árið í röð sem íslenskt tónskáld hreppir ein af aðalverðlaunum hátíðarinnar, því Jóhann Jóhannsson var valinn kvikmyndatónskáld ársins 2017 og 2018, meðal annars fyrir tónlistina í myndinni Mandy, Mary Magdalene, sem hann samdi einmitt í samvinnu við Hildi.

Sjá nánar hér: Hildur er sjónvarpstónskáld ársins

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR