Aðsókn | 34 þúsund á „Lof mér að falla“ eftir þriðju helgi

Lof mér að falla eftir Baldvin Z er áfram í efsta sæti aðsóknarlistans eftir þriðju sýningarhelgi, en alls hafa um 34 þúsund manns séð hana hingað til.

Þetta er mun meiri aðsókn en á Vonarstræti, sem hafði fengið um 28 þúsund gesti eftir þriðju sýningarhelgi árið 2014.

Alls sáu 10,476 gestir Lof mér að falla í vikunni, en heildarfjöldi gesta er 33,979 manns.

197 sáu Kona fer í stríð í vikunni. Alls hafa 17,873 séð myndina eftir 18. sýningarhelgi, en hún var valin framlag Íslands til Óskarsverðlauna á dögunum.

Aðsókn á íslenskar myndir 17.-24. september 2018

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
3Lof mér að falla10,47633,97923,503
18Kona fer í stríð197 17,87317,687
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR