Gamanmyndahátíð Flateyrar skorar á íslenskt kvikmyndagerðarfólk að gera fleiri gamanmyndir

Aðstandendur Gamanmyndahátíðar Flateyrar segjast vera um það bil að klára sjóð íslenskra gamanmynda og því sé brýn þörf á að búa til fleiri slíkar. Hátíðin verður haldin í þriðja sinn dagana 13.-16. september næstkomandi.

Í ár verða þrjátíu íslenskar gamanmyndir sýndar og af þeim eru ellefu frumsýningar.

Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er Óskar Jónasson leikstjóri og Sódóma Reykjavík er heiðursmynd hátíðarinnar. Þar fyrir utan verða sýndar tvær af fyrstu myndum Óskars, Oxsmá plánetan og Sjúgðu mig Nína, sem hefur verið með öllu óaðgengileg frá því að hún kom úr árið 1985. Myndin hefur þó lifað góðu lífi  í formi sögusagna, enda hefur myndin skipað sér í fremstu röð meðal íslenskra költ mynda.  Með aðalhlutverk í Sjúgðu mig Nína fara þau Kormákur Geirharðsson og Halla Margrét Árnadóttir, sem eru heldur þekktari fyrir tónlist sína en leikhæfileika í dag.

Aðstandendur hátíðarinnar, Eyþór Jóvinsson og Ársæll Níelsson hafa sent frá sér eftirfarandi áskorun:

Á undanförnum árum hefur Gamanmyndahátíð Flateyrar sýnt tæplega 100 íslenskar gamanmyndir og ljóst að sá sjóður er ekki botnlaus, en hátíðarhöldurum hefur tekist að grafa ansi djúpt eftir mörgum myndum, og reyndar bjargað nokkrum þeirra frá glötun með því að fjármagna yfirfærslu mynda yfir á stafrænt form. Svo hátíðin megi dafna og lifa um ókomna tíð þarf að framleiða fleiri gamanmyndir á Íslandi. Því skorar Gamanmyndahátíð Flateyrar á íslenskt kvikmyndagerðarfólk að framleiða fleiri gamanmyndir á komandi árum.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR