Aðsókn | „Adrift“ nálgast tólf þúsund gesti eftir fimm vikur, „Kona fer í stríð“ nálgast fimmtán þúsund eftir átta

Sam Claflin og Shailene Woodley í Adrift.

Adrift Baltasars Kormáks er með um ellefu þúsund og fimm hundruð gesti eftir fimmtu sýningarhelgi. Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson með um fjórtán þúsund og fimm hundruð gesti eftir áttundu sýningarhelgi.

619 sáu Adrift í vikunni, en alls hafa 11,556 séð hana eftir fimmtu sýningarhelgi. Myndin er í 11. sæti.

599 sáu Kona fer í stríð í vikunni. Alls hafa nú 14,522 séð hana eftir átta helgar. Myndin er áfram í áttunda sæti aðsóknarlistans.

Andið eðlilega hefur alls fengið 6,511 gesti eftir 19 vikur.

Vargur er í 21. sæti sæti eftir 11 vikur. Alls hafa 6,305 nú séð myndina.

Lói er í 20. sæti eftir 24. sýningarhelgi en alls hafa 24,160 séð myndina hingað til.

Aðsókn á íslenskar myndir 9.-15. júlí 2018

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
5Adrift619 11,556 10,937
8Kona fer í stríð59914,522 13,923
19Andið eðlilega436,511 6,468
24Lói - þú flýgur aldrei einn3324,160 24,127
11Vargur66,305 6,299
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR