Þessar íslensku myndir hafa fengið mesta bíóaðsókn á heimsvísu

Í tilefni mikillar velgengni Dýrsins í Bandaríkjunum þessa dagana birtist hér uppfærður listi yfir þær kvikmyndir íslenskar sem fengið hafa mesta aðsókn í bíóum á heimsvísu.

Líklegt verður að teljast að Dýrið verði meðal mest sóttu myndanna þegar yfirstandandi ár verður gert upp. Myndin hefur verið seld til fjölda landa en hefur enn ekki verið sýnd í flestum þeirra. Miðað við tekjur má áætla að aðsókn á Dýrið vestanhafs nemi í kringum hundrað þúsund gestum eftir fyrstu helgina, en það skýrist betur síðar.

15 aðsóknarhæstu íslensku kvikmyndirnar á heimsvísu

1Lói - þú flýgur aldrei einn1.719.360
2Hetjur Valhallar: Þór1.120.907
3Kona fer í stríð803.592
4Hrútar543.014
5101 Reykjavík417.342
6Nói albínói352.512
7Fúsi267.244
8Undir trénu179.176
9Mýrin172.874
10Englar alheimsins139.633
11Djöflaeyjan126.848
12Hafið126.684
13Hross í oss125.431
14Cold Fever97.489
15The Good Heart81.229

Listinn er (að mestu) byggður á gögnum Lumiere gagnabankans sem European Audiovisual Observatory heldur utan um, en það apparat er á vegum Evrópuráðsins (Council of Europe). Þar er að finna gögn um aðsókn allra evrópskra mynda frá 1996.

Hafa þarf í huga að þessar tölur sýna aðeins brot af þeim hópi sem horfir á íslenskar myndir víða um heim, en gefur fyrst og fremst vísbendingu um áhuga og velheppnaða markaðssetningu í einstökum löndum.

Einnig þarf að hafa í huga að flestar þessara mynda eru einnig sýndar í sjónvarpi og hin síðari ár birtast sumar þeirra á efnisveitum sem í sumum tilfellum ná til yfir hundrað milljón áskrifenda um allan heim. Tölur um áhorf á íslenskar myndir í þessum miðlum liggja ekki fyrir, en óhætt er þó að fullyrða að þar sé um miklu hærri tölur að ræða.

Með því að smella á heiti myndanna í gagnagrunninum kemur upp ítarlegur sundurliðaður listi eftir löndum. Neðst á síðu viðkomandi myndar er jafnframt sundurliðun á heildaraðsókn innan Evrópu annarsvegar (EUR EU) og alls heimsins hinsvegar (EUR OBS). Inní seinni tölunni er einnig aðsókn á Íslandi. Listinn sem hér fylgir er byggður á seinni tölunni (EUR OBS).

*Lumiere listinn inniheldur ekki af einhverjum ástæðum tölur frá S-Kóreu varðandi Hetjur Valhallar – Þór. En samkvæmt kóresku vefsíðuni Han Cinema, The Korean Movie and Drama Database, var myndin komin með 739,037 áhorfendur þar í landi eftir fimm sýningarhelgar árið 2012. Sú tala bætist því við tölur Lumiere listans (381,870 miðar seldir).
FYRIRVARI: Rétt er að minna á að upplýsingar getur vantað í sumum tilfellum. Því ber ekki að skoða þetta sem nákvæman lista heldur frekar sem vísbendingar. Sjá fyrirvara Lumiere gagnagrunnsins hér.
Geti lesendur sýnt fram á gögn sem styðja frekari aðsókn sem ekki er að finna á Lumiere listanum er hægt að hafa samband við ritstjóra hér.
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR