Hverjar eru vinsælustu íslensku kvikmyndirnar á heimsvísu?

Fjöldi íslenskra kvikmynda ferðast víða um heiminn, á hátíðir, í kvikmyndahús, í sjónvarp og nú á undanförnum árum í efnisveitur. Klapptré birtir nú lista yfir þær íslensku kvikmyndir sem hlotið hafa mesta aðsókn í bíó á heimsvísu.

Hafa þarf í huga að þær tölur sýna aðeins brot af þeim hópi sem horfir á íslenskar myndir víða um heim, en gefur fyrst og fremst vísbendingu um áhuga og velheppnaða markaðssetningu í einstökum löndum. Listinn er (að mestu) byggður á gögnum Lumiere gagnabankans sem European Audiovisual Observatory heldur utan um, en það apparat er á vegum Evrópuráðsins (Council of Europe). Þar er að finna gögn um aðsókn allra evrópskra mynda frá 1996 til 2017 (enn á eftir að færa inn gögn fyrir 2018).

Hafa ber í huga að flestar þessara mynda eru einnig sýndar í sjónvarpi og hin síðari ár birtast sumar þeirra á efnisveitum sem í sumum tilfellum ná til yfir hundrað milljón áskrifenda um allan heim. Tölur um áhorf á íslenskar myndir í þessum miðlum liggja ekki fyrir, en óhætt er þó að fullyrða að þar sé um miklu hærri tölur að ræða.

Með því að smella á heiti myndanna í gagnagrunninum kemur upp ítarlegur sundurliðaður listi eftir löndum. Neðst á síðu viðkomandi myndar er jafnframt sundurliðun á heildaraðsókn innan Evrópu annarsvegar (EUR EU) og alls heimsins hinsvegar (EUR OBS). Inní seinni tölunni er einnig aðsókn á Íslandi. Listinn sem hér fylgir er byggður á seinni tölunni (EUR OBS).

Fróðlegt verður að sjá hvort Undir trénu, Eiðurinn, Lói – þú flýgur aldrei einn og Kona fer í stríð bætast á þennan lista innan tíðar, en þær voru í dreifingu í kvikmyndahúsum víða um heim á síðasta ári.

FYRIRVARI: Rétt er að minna á að upplýsingar getur vantað í sumum tilfellum. Því ber ekki að skoða þetta sem nákvæman lista heldur frekar sem vísbendingar. Sjá fyrirvara Lumiere gagnagrunnsins hér.

Tíu aðsóknarhæstu íslensku kvikmyndirnar á heimsvísu 1996-2017

MYNDAÐSÓKN
Hetjur Valhallar - Þór *1,120,809
Hrútar540,077
101 Reykjavík432,525
Nói albíníói348,453
Fúsi260,662
Mýrin172,852
Englar alheimsins139,633
Hafið130,249
Djöflaeyjan129,262
Hross í oss124,425

(*Lumiere listinn inniheldur ekki af einhverjum ástæðum tölur frá S-Kóreu varðandi Hetjur Valhallar – Þór. En samkvæmt kóresku vefsíðuni Han Cinema, The Korean Movie and Drama Database, var myndin komin með 739,037 áhorfendur þar í landi eftir fimm sýningarhelgar árið 2012. Sú tala bætist því við tölur Lumiere listans (381,772 miðar seldir). Geti lesendur sýnt fram á gögn sem styðja frekari aðsókn sem ekki er að finna á Lumiere listanum er hægt að hafa samband við ritstjóra hér.)

 

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR