Víti í Vestmannaeyjum eftir Braga Þór Hinriksson er í fyrsta sæti aðsóknarlistans þriðju helgina í röð og er heildarfjöldi áhorfenda kominn yfir 25 þúsund manns.
Í vikunni komu 6,132 gestir á Víti í Vestmannaeyjum og alls hafa því 25,366 séð hana eftir þriðju sýningarhelgi.
Andið eðlilega er í 11. sæti eftir 5. sýningarhelgi. 724 sáu myndina í vikunni sem er mun meira en í síðustu viku – en þá komu fleiri gestir en í vikunni á undan. Myndin er því að bæta við sig í aðsókn sem er sjaldgæft þegar sýningar hafa staðið svona lengi. Alls hafa 5,384 gestir séð hana. (Minnt er á að Klapptré raðar myndum eftir vikuaðsókn en FRÍSK raðar á listann eftir helgarinnkomu, sem skýrir hversvegna Andið eðlilega er hér ofar en Lói).
Lói er áfram í áttunda sæti eftir 10. sýningarhelgi en hún fékk 492 gesti í vikunni. Alls hafa 22,211 séð myndina hingað til.
73 sáu Fulla vasa í vikunni. Alls nemur gestafjöldi nú 8,104 manns eftir sjö vikur í sýningum. Myndin er 19. sæti.
Svanurinn er í 21. sæti eftir 14. sýningarhelgi. 11 sáu hana í vikunni, en alls hafa 4,293 séð hana.
Aðsókn á íslenskar myndir 2.-8. apríl 2018
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
3 | Víti í Vestmannaeyjum | 6,132 | 25,366 | 19,234 |
10 | Lói - þú flýgur aldrei einn | 492 | 22,211 | 21,719 |
5 | Andið eðlilega | 724 | 5,384 | 4,660 |
7 | Fullir vasar | 73 | 8,104 | 8,031 |
14 | Svanurinn | 11 | 4,293 | 4,282 |