Fréttablaðið um „Undir trénu“: Gott að eiga góða granna

Edda Björgvinsdóttir í Undir trénu.

Tómas Valgeirsson skrifar í Fréttablaðið um Undir trénu eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson og segir hana brakandi ferska kómedíu í dekkri kantinum. Hann gefur myndinni fjórar stjörnur.

Úr umsögn Tómasar:

Handritið er einfalt í grunninn en spilar með flóknar tilfinningar sem sjaldan eru stafaðar út. Þetta á líka við um það hvernig upplýsingar komast til skila, hvaða spurningum handritið svarar og hvar áhorfendur geta leyft sér að fylla í eyðurnar.

Hafsteini tekst að segja margt með ótal smáatriðum og fær góðan stuðning frá tvennu sem skiptir heildarsvip myndarinnar öllu máli. Fyrst ber að nefna vandaða kvikmyndatöku Moniku Lenczewska, sem gefur sögunni viðeigandi kalda, í raun dapurlega pallettu. Síðan er það býsna geggjuð tónlist frá Daníel Bjarnasyni sem býr til magnandi og furðulegan drunga (með smá aðstoð frá Bach og Rachmaninoff).

Músíkin á sömuleiðis stóran þátt í því hvernig heildin skiptir svo listilega um gír, úr gríni í alvöru, þó myndin eigi það vissulega til að vera grafalvarleg og fyndin á sama tíma. Og stundum drephlægileg.

Leikhópurinn sem hér hefur safnast saman er ekkert annað en meiriháttar, í jafnt smáum sem stórum hlutverkum. Bæði nær hópurinn að gæða þennan „melankólíska“ farsa hressri orku og slá hvergi feilnótu þegar kemur að dramatískari hliðunum. Edda Björgvinsdóttir er þó óumdeild stjarna myndarinnar, með mestu dýptina og eftirminnilegustu persónuna, og hefur ekki í áraraðir eignað sér skjáinn eins og hún gerir hér.

En öll dýnamík karaktera og leikara eins og hún leggur sig, ásamt þrívíðum, mannlegum eða snarbiluðum hliðum þeirra, innsiglar meðmælin. Þar koma til dæmis Þorsteinn Bachmann, Selma Björnsdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir og (sérstaklega) Siggi Sigurjóns mjög sterk inn. Steindi Jr. kemur einnig vel út með stórfínum leik sem jafnast samt ekki á við áreynslulaus tilþrifin hjá reyndari mótleikurum hans, en hann leggur sig allan fram og passar í hlutverk sem er meira marglaga en mætti halda í fyrstu.

Hlutverk Steinda og þróun hans í myndinni hefur að vísu ekki sama bit í sér og allt sem viðkemur eldra settinu og deilum þess við nágranna sína. Reyndar hefði mátt gera ögn meira með Selmu, jafnvel Víking Kristjáns og Nönnu Kristínu Magnúsdóttur, en um þau tvö má svo sem deila.

Nágrannastríð í bíómyndum, gaman eða drama, er formúla sem tekið hefur ýmiss konar form. Með þessari mynd hefði einmitt verið auðvelt að ganga of langt með grínið, en hún skarar fram úr með einlægri rödd sem styrkir hana og karakterana, auk þess að ná svona fínt að trekkja upp lágstemmdan spennugjafa úr vaxandi gremjunni.

Undir trénu er laus við tilgerð og rembing, og þess í stað kemur yndislega rugluð, hnyttin, tragísk og faglega unnin mynd á flestan máta, frá klippingu til hljóðvinnslu. Sem bónus er hún hlaðin ýmsum ógleymanlegum litlum atvikum og ljúfum skammti af vægðarleysi, tilfinningadýpt og kaldhæðni í leiðinni. Bara gaman.

Source: Gott að eiga góða granna – Visir

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR