Ólafur Egill Egilsson ráðinn handritaráðgjafi RÚV

Skarphéðinn Guðmundsson og Ólafur Egill Egilsson.

Ólafur Egill Egilsson hefur verið ráðinn í stöðu handritaráðgjafa hjá dagskrárdeild sjónvarps á RÚV. Ólafur Egill var valinn úr hópi 79 umsækjenda og tekur þegar til starfa.

Í fréttatilkynningu frá RÚV segir:

Handritaráðgjafi gegnir þýðingarmiklu hlutverki í þróun leikins efnis. Í starfinu felst móttaka hugmynda, mat á verkefnum, þátttaka í verkefnavali, þróun handrita og framleiðslu á verkum sem RÚV er meðframleiðandi að. Samhliða ráðningu handritaráðgjafa tekur til starfa fagráð um leikið efni sem fær til reglubundinnar meðferðar öll leikin verkefni á vegum RÚV. Þau leiknu verkefni sem RÚV tekur þátt í sem meðframleiðandi, aðalframleiðandi eða kaupandi sýningarréttar verða undir undir merkjum RÚV mynda.

Ráðning handritaráðgjafa, fagráð um leikið efni og RÚV myndir eru í samræmi við nýútgefna stefnu RÚV til 2021. Eitt af meginmarkmiðum hennar er efling íslenskrar menningar og frumsköpun, þar á meðal með því að leggja enn frekar aukna áherslu á leikið íslenskt efni, þar sem sagðar eru sögur úr næsta umhverfi, stórar sem sem smáar, frumlegar, spennandi, dramatískar, krefjandi, skemmtilegar, hjartnæmar, nærandi og gefandi. Slíkar sögur eiga sérstaklega erindi við íslenska þjóð á sama tíma og ofgnótt er af sögum sem spegla erlendan veruleika.

RÚV tekur í vaxandi mæli þátt í kvikmyndagerð hérlendis og mörg verkefnanna hafa notið mikilla vinsælda, þ. á m. Ófærð, Ligeglad og Fangar. Í haust verður frumsýnd þáttaröð fyrir alla fjölskylduna, Loforð, Ófærð 2 er í framleiðslu og í síðustu viku greindu Baltasar Kormákur leikstjóri og Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri frá nýju stórverkefni, kvikmynd og sjónvarpsþætti upp úr Sjálfstæðu fólki.

Ólafur Egill Egilsson er 39 ára, leikari og leikstjóri. Hann útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands 2002 og hefur leikið í fjölda leiksýninga og kvikmynda. Hann hefur leikstýrt sýningum á borð við Hystory, gert leikgerðir að eftirminnilegum leikverkum eins og Fólkið í kjallaranum og Svar við bréfi og verið meðhöfundur leiksýninga á borð við Karitas, Sjálfstætt fólk og nú síðast Ellý. Ólafur Egill var meðhöfundur kvikmyndanna Sumarlandið, Brim, Brúðguminn, Afinn og Eiðurinn og sjónvarpsþáttaraðarinnar Ófærð. Þá hefur hann einnig verið handritaráðgjafi við gerð fjölda kvikmynda og sjónvarpsverkefna. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir sín störf, m.a. Grímuna.

„Það er mikill fengur í Ólafi Agli og við erum þess fullviss að öll hans þekking og reynsla á sviði handritagerðar og -ráðgjafar eigi eftir að reynast afar dýrmæt og drjúg við að efla þátt leikins efnis hjá RÚV,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR