![Andri Freyr Viðarsson.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2016/08/Andri-Freyr-Viðarsson.jpg?resize=480%2C320&ssl=1)
Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson er genginn til liðs við Republik. Þetta kemur fram á Facebook síðu fyrirtækisins.
Þar segir að Andri Freyr muni gegna stöðu yfirmanns innlendrar dagskrárgerðar innan fyrirtækisins og halda áfram að þróa hugmyndir og heimildarmyndir sem eru bæði á grunnstigum og nú þegar komnar í framleiðslu.
Andri hefur á undanförnum árum komið að ýmiskonar verkefnum fyrir sjónvarp og má þar meðal annars nefna þættina Andri á flandri, sem hlutu Edduverðlaunin.