![Frá tökum á Tom of Finland í Berlín á dögunum.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2016/04/tom-of-finland-frá-tökum-í-berlín.jpg?resize=696%2C506&ssl=1)
Ingvar Þórðarson og Sophie Mahlo, sem reka framleiðslufyrirtækið Neutrinos Productions í Berlín, eru meðframleiðendur á nýjustu mynd finnska leikstjórans Dome Karukoski, Tom of Finland. Ingvar var einnig meðframleiðandi síðustu myndar Karukoski, The Grump, ásamt Júlíusi Kemp.
Myndin byggir á ævi Touko Laaksonen, sem varð einn helsti íkon samkynhneigðra undir listamannsheitinu Tom of Finland. Hún hefst þegar hann snýr aftur til Helsinki eftir að hafa gegnt herþjónustu í seinni heimsstyrjöldinni. Þar var hann ofsóttur fyrir kynhneigð sína og neyddur til að giftast konu en uppgötvar síðan frelsi gegnum listsköpun, sér í lagi með teikningum af vöðvastæltum karlmönnum í djörfum stellingum. Verk hans urðu síðan kunn um veröld víða og urðu hluti af mannréttindabaráttu samkynhneigðra í Bandaríkjunum og víðar.
Finnar, Danir, Svíar og Þjóðverjar koma að fjármögnun þessarar myndar, en kostnaður nemur um 4 milljónum evra (rúmlega 562 milljónir króna). Protagonist Pictures í London sér um alþjóðlega sölu.
Tökur fara fram í Finnlandi, Svíþjóð, Berlín, Spáni og Los Angeles.
![tom of finland prod dir](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2016/04/tom-of-finland-prod-dir.jpg?resize=440%2C247&ssl=1)
Aleksi Bardy, sem jafnframt skrifar handritið, Miia Haavisto og Annika Sucksdorff hjá Helsinki Film eru framleiðendur. Gunnar Carlsson hjá Anagram Väst í Svíþjóð og Miriam Nørgaard hjá Fridthjof Film í Danmörku eru meðframleiðendur ásamt Ingvari og Sophie í samvinnu við Mike Downey og Sam Taylor hjá Film and Music Entertainment (F&ME) í Bretlandi.