Spurt og svarað sýning á „Everest“ 5. nóvember

Baltasar við tökur á Everest.
Baltasar við tökur á Everest.

Sérstök spurt og svarað sýning verður haldin á kvikmynd Baltasars Kormáks, Everest, fimmtudaginn 5. nóvember í Sambíóunum í Egilshöll. Sýningin er haldin í samstarfi við 66°Norður, Félag íslenskra fjallalækna (FÍFL), Sambíóin og RVK Studios.

Eftir sýningu myndarinnar munu Baltasar Kormákur, leikstjóri myndarinnar, og Daði Einarsson, VFX supervisor sem stýrði tæknibrellum í myndinni, svara spurningum gesta úr sal. Þá mun Tómas Guðbjartsson fjallalæknir einnig svara spurningum og jafnframt stýra umræðum. Þeir munu fjalla um hvað gerðist í raun og veru í þessum sögufræga Everest leiðangri og hvað hægt er að læra af honum og því sem fór úrskeiðis. Auk þess sem farið verður yfir hvernig tæknibrellurnar voru útfærðar í myndinni. Þá mun Tómas fjalla um hvaða áhrif súrefnisskortur hefur á dómgreind.

Miðaverð er 3.000 kr og rennur ágóði af sýningunni til undanfarasveitar Landsbjargar. Miðar á sýninguna eru seldir hér.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR