„Þrestir“ opnar í tíunda sæti, „Everest“ aftur á toppinn

Atli Óskar Fjalarsson í Þröstum Rúnars Rúnarssonar.
Atli Óskar Fjalarsson í Þröstum Rúnars Rúnarssonar.

Þrestir Rúnars Rúnarssonar eru í tíunda sæti á opnunarhelginni meðan Everest Baltasars snýr aftur í efsta sætið. Heimildamyndin Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum gengur ágætlega.

Everest-Ísland: 5,854 sóttu Everest í vikunni og hefur þá myndin fengið alls 59,171 gest. Bandaríkin: Myndin er nú í 14. sæti á aðsóknarlistanum en hún tók inn 1,170 milljón dollara um helgina. Alls nema tekjur í Bandaríkjunum rúmum 40 milljónum dollara. Alþjóðlegar tekjur: 126 milljón dollarar. Heildartekjur hingað til: 166,7 milljón dollarar.

Almennar sýningar á Þröstum hófust á föstudag. Aðsókn um helgina nam 475 manns en með forsýningum er hún komin í 1,865 manns. Myndin er í tíunda sæti eftir helgina.

Heimildamyndin Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum lauk annarri sýningarhelgi í 11. sæti. 1,334 sáu hana í vikunni en alls hefur hún fengið 2,088 gesti.

Önnur heimildamynd, Jóhanna – síðasta orrustan, var frumsýnd á föstudag og komu 118 að sjá hana um helgina. Með forsýningum hafa 323 séð myndina. Myndin er í 16. sæti.

Hrútar og Fúsi eru enn í sýningum; sú fyrrnefnda er komin með 20,997 gesti, sú síðarnefnda með 12,734.

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
5Everest5,85459,171
2Stúlkurnar frá Kleppjárnsreykjum1,3342,088
Þrestir475 (helgin)1,865 (með forsýningum)
Jóhanna - síðasta orrustan118 (helgin)323 (með forsýningum)
21HrútarEkki vitað20,997
30FúsiEkki vitað12,734
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR