Ný „Webcam“ stikla opinberuð

Webcam posterNý stikla kvikmyndarinnar Webcam eftir Sigurð Anton Friðþjófsson hefur verið opinberuð og má sjá hana hér að neðan. Myndin verður frumsýnd 8. júlí.

Myndin fjallar um unga stúlku sem fækkar fötum fyrir framan vefmyndavél og gerist svokölluð camgirl og hvers konar áhrif það hefur á hana og sambönd hennar við vini, kærasta og fjölskyldu.

Sigurður Anton er í spjalli við Vísi:

„Hún er ekki ögrandi, kannski pínu gróf. Gróf í tali en með hreint hjarta,“ segir hann hlæjandi um myndina sem flokkuð er sem gamanmynd.

Sigurður er hvorki menntaður í kvikmynda- né handritagerð en hann hefur lengi haft áhuga á skrifum.

„Mér finnst skemmtilegast að skrifa, það er svona númer eitt, tvö og þrjú.“

Karakterana skrifaði Sigurður flesta með ákveðna leikara í huga. „En ég hafði ekki hugmynd um hver ætti að vera í aðalhlutverkinu,“ segir hann.

Úr varð að Anna Hafþórsdóttir, sem margir kannast við úr þáttunum um Tinnu og Tótu, fer með hlutverk vefmyndavélastúlkunnar. Henni kynntist Sigurður þegar hún fór með hlutverk í stuttmyndinni Sól sem Sigurður skrifaði og framleiddi.

„Það klikkaði einhvern veginn og ég fann að hún var fullkomin fyrir þetta.“

Myndin var tekin á sextán dögum og því lítið sem mátti út af bregða. „Þetta var bara eitt stórt ævintýri og gekk rosalega vel,“ segir Sigurður ánægður að lokum.

Sjá nánar hér: visir.is

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR