Greining | Risa opnunarhelgi á fjórðu Sveppamyndinni

AlgjorSveppi4Fjórða Sveppamyndin, Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum, fékk alls 11.425 manns á opnunarhelginni og 12.225 séu forsýningar meðtaldar. Þetta er stærsta opnunarhelgi alla Sveppamyndanna fram að þessu og fjórða stærsta opnunarhelgi íslenskrar kvikmyndar frá því mælingar hófust 1996 (Mýrin, Bjarnfreðarson og Stella í framboði eru ofar). Myndin trónir í efsta sætinu, en Grafir og bein eru í því þriðja með alls 2.128 gesti að forsýningum meðtöldum (1.418 um opnunarhelgina).

Borgríki 2 Ólafs de Fleur fellur úr þriðja sæti aðsóknarlistans í það fimmta eftir þriðju sýningarhelgi. 941 sá myndina um helgina en alls 2.337 yfir vikuna. Heildaraðsókn frá upphafi nemur 9.379 manns.

Afinn er nú í áttunda sæti eftir sjöttu sýningarhelgi. Alls hafa 13.959 séð myndina frá upphafi, þar af 1.050 síðastliðna viku.

París norðursins er nú í 20. sæti aðsóknarlistans eftir níu vikur í sýningum. Alls hafa 11.468 gestir séð myndina hingað til, en þar af komu 93 í vikunni. Búast má við að sýningum fari senn að ljúka.

AÐSÓKN VIKUNA 27. okt. til 2. nóv. 2014:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum11.42512.225
Grafir og bein1.4182.128
3Borgríki 22.337 9.379
6Afinn1.05013.959
9París norðursins93 11.468
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR