„Grafir og bein“ frumsýnd 3. október, stikla hér

grafir-og-bein-still

Sálfræðitryllirinn Grafir og bein eftir Anton Sigurðsson verður frumsýnd þann 3. október næstkomandi. Þetta er fyrsta mynd Antons í fullri lengd en áður gerði hann meðal annars stuttmynd með sama nafni sem nýlega var sýnd í Sjónvarpinu. Í aðalhlutverkum eru þau Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Hlynur Haraldsson en Erlingur Jack Guðmundsson hjá Ogfilms framleiðir. Pegasus og Mystery eru meðframleiðendur. Sena dreifir.

Hjónin Gísli og Sonja höfðu allt. Peninga, ást og gullfallega dóttur. En þegar dóttir þeirra Dagbjört deyr er veröld þeirra kippt undan þeim. Til að bæta gráu ofan á svart þá er Gísli í miðjum réttarhöldum útaf ólöglegum kaupum og lánveitingum sem áttu sér stað í góðærinu.

Þegar Sigurður bróðir Gísla og konan hans látast ákveða þau að taka dóttir þeirra hana Perlu í fóstur. Gísli og Sonja leggja í leiðangur að sækja stelpuna sem er stödd í afskekktu húsi Sigurðar.

Þegar komið er í húsið fara undarlegir hlutir að gerast. Perla virðist hafa þau áhrif á Sonju að hún vilji setjast að í húsinu á meðan að Gísla hreinlega getur ekki verið þarna. Svefnlausar nætur, dularfullt fólk sem heimsækir þau og ótrúlegir hlutir sem þau upplifa í veru sinni í húsinu sem er reimt. Það er því spurning hvort Gísla takist að halda út þessa löngu helgi sem þau eru í húsinu eða missir hann vitið? Er Gísli allur sem hann er séður eða kemur sannleikurinn upp á yfirborðið? 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR