„Málmhaus“ með flestar tilnefningar til Edduverðlauna

edda 2014Tilnefningar til Edduverðlauna voru kynntar í dag. Alls er tilnefnt í 23 flokkum auk þess sem tilkynnt verður um heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar á hátíðinni sjálfri sem fram fer laugardaginn 22. febrúar. Sent verður beint út frá hátíðinni á Stöð 2 og verður útsendingin opin.

Málmhaus leiðir fríðan flokk tilnefndra með alls 16 tilnefningar, Hross í oss fær alls 14 og XL 11. Ellefu sjónvarpsþættir RÚV eru tilnefndir, fimm frá Stöð 2 og tveir frá Skjá einum. Þá er sjónvarpsþátturinn Auðæfi hafsins á norðlensku sjónvarpsstöðinni N4 tilnefndur sem frétta-og viðtalsþáttur ársins.

Sérstaka athygli vekur að Útúrdúr, tónlistarþáttur Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara og Höllu Oddnýjar Magnúsdóttur mannfræðings, fær enga tilnefningu. Þá er Fólkið í blokkinni ekki tilnefnt í flokk leikins sjónvarpsefnis né í leikara- eða leikstjórnarflokka, en fær tilnefningar fyrir búninga og leikmynd.

Hér eru tilnefningarnar í heild sinni.

Barna og unglingaefni
Ávaxtakarfan
Stundin okkar
Vasaljós

Brellur
Daði Einarsson og Gísli Þórólfsson – Málmhaus
Jörundur Rafn Arnarson – Hross í oss
Jörundur Rafn Arnarson – Ófeigur gengur aftur

Búningar
Arndís Ey – Sönn íslensk sakamál
Helga Rós Hannam – Fólkið í Blokkinni
Helga Rós Hannam – Málmhaus

Frétta- eða viðtalsþáttur
Auðæfi hafsins
Ísþjóðin 3
Kastljós
Málið
Tossarnir

Gervi
Sigríður Rósa Bjarnadóttir og Gunnhildur Erlingsdóttir – Hross í oss
Steinunn Þórðardóttir – Málmhaus
Svanhvít Valgeirsdóttir – Ávaxtakarfan

Handrit
Benedikt Erlingsson – Hross í oss
Brynja Þorgeirsdóttir, Bragi Valdimar Skúlason og Konráð Pálmason – Orðbragð
Guðmundur Óskarsson og Marteinn Þórsson – XL
Jón Atli Jónasson – Falskur fugl
Ragnar Bragason – Málmhaus

Heimildamynd
Aska
Ég gefst ekki upp
Fit Hostel
Hvellur
Strigi og flauel

Hljóð
Birgir Tryggvason og Sindri Þór Kárason – Ófeigur gengur aftur
Bogi Reynisson og Pétur Einarsson – XL
Friðrik Sturluson – Hulli
Huldar Freyr Arnarson – Málmhaus
Páll S. Guðmundsson og Sýrland – Hross í oss

Klipping
Davíð Alexander Corno – Hross í oss
Guðni Hilmar Halldórsson – Fiskar á þurru landi
Stefanía Thors, Marteinn Þórsson, Sigurður Eyþórsson, Valdís Óskarsdóttir – XL
Sævar Guðmundsson – Sönn íslensk sakamál
Valdís Óskarsdóttir – Málmhaus

Kvikmynd
Hross í oss
Málmhaus
XL

Kvikmyndataka
Ágúst Jakobsson – Málmhaus
Bergsteinn Björgúlfsson – Hross í oss
Bergsteinn Björgúlfsson – XL
Christoph Cico Nicolaisen – Falskur fugl
Gunnar Auðunn Jóhannsson – Hvalfjörður

Leikari í aðalhlutverki
Ágúst Örn B. Wigum – Hvalfjörður
Ingvar E. Sigurðsson – Hross í oss
Kjartan Guðjónsson – Ástríður 2
Ólafur Darri Ólafsson – XL
Styr Júlíusson – Falskur fugl

Leikari í aukahlutverki
Björn Hlynur Haraldsson – Ástríður 2
Hannes Óli Ágústsson – Málmhaus
Ingvar E. Sigurðsson – Málmhaus
Steinn Ármann Magnússon – Hross í oss
Sveinn Ólafur Gunnarsson – Málmhaus

Leikið sjónvarpsefni
Ástríður 2
Fiskar á þurru landi
Hulli

Leikkona í aðalhlutverki
Charlotte Böving – Hross í oss
Ilmur Kristjánsdóttir – Ástríður 2
María Birta Bjarnadóttir – XL
Ólafía Hrönn Jónsdóttir – Fiskar á þurru landi
Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir – Málmhaus

Leikkona í aukahlutverki
Halldóra Geirharðsdóttir – Málmhaus
Margrét Helga Jóhannsdóttir – XL
Maríanna Clara Lúthersdóttir – Þetta reddast
Nanna Kristín Magnúsdóttir – XL
Sigríður María Egilsdóttir – Hross í oss

Leikmynd
Gunnar Pálsson – Fólkið í blokkinni
Júlía Embla Katrínardóttir – Hvalfjörður
Linda Mjöll Stefánsdóttir – Ávaxtakarfan
Sigurður Óli Pálmarsson – Hross í oss
Sveinn Viðar Hjartarsson – Málmhaus

Leikstjórn
Benedikt Erlingsson – Hross í oss
Guðmundur Arnar Guðmundsson – Hvalfjörður
Marteinn Þórsson – XL
Ragnar Bragason – Málmhaus
Þór Ómar Jónsson – Falskur fugl

Menningar- eða lífstílsþáttur
Djöflaeyjan
Ferðalok
Hið blómlega bú
Hljómskálinn
Með okkar augum

Sjónvarpsmaður
Bogi Ágústsson
Bragi Valdimar Skúlason
Brynja Þorgeirsdóttir
Lóa Pind Aldísardóttir
Sölvi Tryggvason

Skemmtiþáttur
Áramótaskaup sjónvarpsins 2013
Bara grín
Hraðfréttir
Orðbragð
Spurningabomban

Stuttmynd
Heilabrotinn
Hvalfjörður
Víkingar

Tónlist
Anna Þorvaldsdóttir og Samaris – XL
Davíð Þór Jónsson – Hross í oss
Hilmar Örn Hilmarsson – Falskur fugl
Karl Olgeirsson – Ófeigur gengur aftur
Pétur Ben – Málmhaus

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR