Latibær Magnúsar Scheving er tilnefndur til Alþjóðlegu Emmy verðlaunanna fyrir barnaefni. Verðlaunin verða veitt í Cannes þann 5. apríl næstkomandi.
Latibær er margverðlaunuð sjónvarpssería, hefur t.d. nokkrum sinnum hlotið Edduverðlaun (Magnús Scheving hlaut heiðursverðlaun ÍKSA 2006) og einnig bresku BAFTA verðlaunin sem og Emmy verðlaunin í Bandaríkjunum.
Alls er barnaefni frá 13 löndum tilnefnt til Alþjóðlegu Emmy verðlaunanna að þessu sinni.
Sjá nánar hér: News – News – Item Detail – International Academy of Television Arts & Sciences