Sýningar eru hafnar á ný á kvikmynd Benedikts Erlingssonar, Kona fer í stríð, sem hlaut Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs á dögunum sem og fern verðlaun í Lubeck. Myndin nálgast 20 þúsund gesta markið. Rúmlega 51 þúsund hafa nú séð Lof mér að falla og Undir halastjörnu er komin yfir þrjú þúsund gesti.
"Áhorfendum er talið trú um að þeir séu um það bil að horfa á enn eina Nordic Noir myndina, en smám saman færist leikurinn yfir á svið hins líkamlega hryllings," segir Tristan Priimägi hjá Cineuropa um Undir halastjörnu Ara Alexanders.
Undir halastjörnu eftir Ara Alexander er í 8. sæti aðsóknarlistans eftir aðra helgi. Alls hafa tæplega 50 þúsund manns séð Lof mér að falla hingað til.
Brynja Hjálmsdóttir skrifar í Morgunblaðið um Undir halastjörnu eftir Ara Alexander og segir hana fagmannlega unna en hefði mátt við meiri spennu. Hún gefur myndinni þrjár og hálfa stjörnu af fimm.
Kvikmyndin Undir halastjörnu (áður Mihkel) eftir Ara Alexander Ergis Magnússon verður frumsýnd 12. október. Stikla myndarinnar hefur litið dagsins ljós og má skoða hér.
Screen fjallar um 15 norrænar myndir sem fagritið telur að stjórnendur kvikmyndahátíða muni slást um á árinu. Þar af eru fjórar íslenskar: Vargur eftir Börk Sigþórsson, Mihkel eftir Ara Alexander, Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson og Alma eftir Kristínu Jóhannesdóttur.
Útlit er fyrir fjölda frumsýninga íslenskra kvikmynda í haust og á fyrrihluta næsta árs eða sextán bíómynda og að minnsta kosti átta heimildamynda í fullri lengd. Aldrei áður hafa jafn margar myndir verið tilbúnar eða á lokastigum vinnslu.
Tökum var að ljúka í Eistlandi á spennudrama Ara Alexanders Magnússonar, Mihkel. Myndin verður frumsýnd næsta vetur en hún byggir lauslega á einu umtalaðasta sakamáli síðari ára, líkfundarmálinu á Neskaupstað árið 2004.