Tökum á „Mihkel“ lokið

Rammi úr Mihkel.

Tökum var að ljúka í Eistlandi á spennudrama Ara Alexanders Magnússonar, Mihkel. Myndin verður frumsýnd næsta vetur en hún byggir lauslega á einu umtalaðasta sakamáli síðari ára, líkfundarmálinu á Neskaupstað árið 2004.

Fyrra tökutímabil myndarinnar hófst 14. nóvember síðastliðinn og fóru tökur fram í Reykjavík, Kópavogi, Keflavík og Djúpavogi. Tökum í Eistlandi lauk sl. föstudag. Tökuliðið var við vinnu á Kaberneeme ströndinni rétt fyrir utan Tallinn ásamt því að taka upp í miðborg Tallinn og í Narva við landamæri Rússlands, en á milli landanna rennur á sem skilur löndin að.

Með aðalhlutverk fara Tómas Lemarquis og Atli Rafn Sigurðarson ásamt eistnesku leikurunum Paaru Oja og Kasper Velberg en þeir hafa báðir mikla reynslu sem leikarar og hafa unnið til fjölda verðlauna í kvikmyndabransanum.

Leifur B. Dagfinnsson og Kristinn Þórðarson hjá Truenorth framleiða ásamt Friðrik Þór Friðrikssyni. Meðframleiðendur eru Evelin Soosar-Pentilla hjá Amrion í Eistlandi og Egil Odergard hjá Filmhuset í Noregi.

Frá tökum á Mihkel í Eistlandi.
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR