Lynne Ramsay heiðursgestur Stockfish

Heiðursgestur Stockfish 2024 er Lynne Ramsay, skoskur leikstjóri, handritshöfundur, framleiðandi og kvikmyndatökukona.

Hún var gestur Stockfish árið 1997 þegar hátíðin bar nafnið Kvikmyndahátíð Reykjavíkur (Reykjavík Film Festival).

Kvikmyndir hennar kafa djúpt í líf barna og ungs fólks og eru þemu eins og sorg, sektarkennd, dauði og eftirleikur hans áberandi í hennar verkum. Lítið er um samtöl eða frásagnir í myndunum en í staðinn er lögð áhersla á sjónræna framsetningu, tónlist og hljóðheim til að skapa söguna.

Á hátíðinni verða þrjár myndir eftir Lynne Ramsay sýndar: Ratcatcher, Morvern Callar og We Need to Talk About Kevin.

Lynne verður með Opið spjall 12. apríl.

HEIMILDStockfish
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR