Framleiðendur fagna hugmyndum um nýtt kvikmyndaver

Innlendir kvikmyndaframleiðendur segja ekki vanþörf á þeirri aðstöðu sem fyrirhugað er að koma upp í Hafnarfirði, þar sem á að rísa stórt kvikmyndaver og tengd aðstaða. Ekkert formlegt samstarf hefur þó átt sér stað við aðstandendur verkefnsins, segja viðmælendur Vísis, sem fjallar um málið.

Segir á Vísi:

Ekki vanþörf á aðstöðu
Fréttastofa ræddi við nokkra innlenda framleiðendur sem sögðust hafa heyrt af verkefninu og átt fundi með aðstandendum þess en könnuðust ekki við formlegt samstarf.

Hilmar Sigurðsson, forstjóri Saga Film, sagðist fagna aukinni uppbyggingu í kvikmyndageiranum á Íslandi. Umfang hans hefði margfaldast og það væri ekki vanþörf á auknum innviðum.

„Það eru aðilar út um allan heim sem sérhæfa sig í svona rekstri og þeir telja að það sé full þörf fyrir þetta hér, miðað við hvernig þróunin hefur verið og hvernig henni er spáð áfram með þessari endurgreiðslu,“ sagði Hilmar um mögulegt kvikmyndaver.

Hann benti á að stór verkefni kölluðu á tvö eða jafnvel þrjú „sound-stage“ og því væri ekki vanþörf á stóru og sérhönnuðu kvikmyndaveri hér á landi.

Elli Cassata, annar eigandi og framkvæmdastjóri Pegasus, sagðist sömuleiðis spenntur fyrir verkefninu en hann hefur verið aðstandendum þess innan handar og meðal annars komið þeim í samband við erlenda aðila á sviði kvikmyndagerðar.

Í kynningu REC Studios er meðal annars vitnað í umsögn Bernadette Caulfield, eins af framleiðendum Game of Thrones, X-Files og Big Love, þar sem hún segir upptökupláss verðmæta söluvöru þessa dagana. „Í Evrópu er það jafn fágætt og hænutennur,“ er haft eftir henni.

Kostur að eigandi versins sé ekki í samkeppni við framleiðendur
„Það er mikill hvati fyrir okkur að það verði til eitt risa kvikmyndaver þar sem allt er á einum stað,“ segir Elli. Hann segir staðsetninguna í Hafnarfirði tilvalda, nálægt öllu en samt ekki inni í miðju þéttbýli.

Eins og kunnugt er hefur verið unnið að uppbyggingu kvikmyndavers og -miðstöðvar í Gufunesi síðustu ár en einn viðmælandi fréttastofu komst þannig að orði að þar réði einn maður, Baltasar Kormákur, lögum og lofum og það væri ekki sjálfgefið að komast að. Baltasar er eigandi RVK Studios.

Elli segir hið fyrirhugaða kvikmyndaver í Hafnarfirði vissulega góðan viðbótar valkost, þar sem þar væri um að ræða aðila sem væri aðeins að bjóða upp á aðstöðu en væri ekki á sama tíma í beinni samkeppni við mögulega leigjendur.

Fyrirtækið sem hyggur á uppbygginguna í Hafnarfirði, REC Studios ehf., er í eigu Arcur Ráðgjafar, sem var stofnað og skráð sem Arcur Finance árið 2019. Félagið var upphaflega í eigu Sigurðar Kristins Egilssonar og Capacent, sem varð gjaldþrota árið 2020.

Það er nú í eigu Sigurðar og Jóhönnu Hjartardóttur í gegnum félagið Zeda ehf., Halldórs Þorkelssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Capacent, og Þrastar Sigurðssonar og Arnars Pálssonar, sem báðir störfuðu hjá Capacent í mörg ár. Hver á 25 prósent hlut í Arcur.

Baltasar Kormákur leikstjóri og framleiðandi segist fagna allri uppbyggingu í kvikmyndaiðnaðinum á Íslandi.

Hann segist í samtali við fréttastofu vilja ítreka að engum hafi verið neitað um aðstöðu í Gufunesi og þá séu umsjón með kvikmyndaverinu og framleiðslufyrirtækið RVK Studios á höndum ólíkra aðila, jafnvel þótt hann sé eigandi að báðu.

Baltasar segir mögulega leigjendur ekki þurfa að hafa áhyggjur af samkeppni frá RVK Studios, þar sem fyrirtækið myndi að sjálfsögðu aldrei sækjast eftir verkefnum sem leigjendur hyggðust taka upp í Gufunesinu.

Þess má geta að framleiðslufyrirtækið True North er meðal annars með aðstöðu í kvikmyndaverinu.

HEIMILDVísir
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR